Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

sunnudagur

víví

Í síðustu viku sendi ég inn voða sæta mynd af mér og litlanum í slingnum. Núna á mánudaginn síðasta kom síðan Hotslingurinn minn, geggjaður brúnn og úr fleece! Sem gerir það að verkum að við getum skroppið örstutt út á meðan við bíðum eftir vagninum. Skruppum í Kolaportið og gáfum öndunum brauð, það vildi svo vel til að það var gott veður núna um helgina. En ég var annars ein heima með 2 stráka og það gekk alveg ógurlega vel. Hefði alveg viljað hafa vagninn og getað leyft Darranum að fara aðeins lengra í göngutúr, eyða aðeins af orkutönkunum, annars fer slatti af orkunni bara í óþekkt ;)

Er að loada inn myndum svo verði ykkur að góðu að kíkja á þær. ég á náttúrulega svo fallega syni að það er ótrúlegt...



Svona miðað við fegurð móður sinnar... hahahaha!




Hérna getið svo skoðað fleiri myndir af þessum fallegu ungu mönnum, nokkrar af foreldrunum og svo nokkrar sem sá eldri fallegi tók af innanstokksmununum okkar. Er með massíva hreingerningaráráttu... það veitti reyndar ekki af :þ

Farin að þrífa knús, Harpa

2 comments:

At þri. apr. 17, 09:47:00 f.h. GMT+0, Blogger Vala tjáði sig...

frábærar myndir af ykkur öllum og gott að allt gengur vel. Knús til ykkar allra.

 
At mið. apr. 18, 10:37:00 f.h. GMT+0, Anonymous Nafnlaus tjáði sig...

Já það er með sanni sagt að drengirnir séu fallegir.

 

Skrifa ummæli

<< Heim