Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

mánudagur

Ennþá feitabolla!

hehe :) Ekki það, ég er ekkert að hamast við að koma krílinu út sko! Hef mestar áhyggjur af því að við förum á hausinn, vegna ógurlegrar forðasöfnunar og hreiðurgerðar! Manngarmurinn harðneitar að hleypa mér í búðir svo ég sleppi mér á netinu í staðinn, húrra fyrir netverslunum!

Annars höfum við það fínt, síðasti vinnu dagurinn minn var á þriðjudaginn fyrir viku síðan og ég er sem sé búin að vera að slaka á, njóta þess að vera til og VERSLA! Þurfti sko að raða með mikilli nákvæmni í ísskápinn eftir síðustu bónusferð og maðurinn minn hristi bara hausinn þegar ég heimtaði stærri ísskáp :þ

Allt lítur vel út hjá bumbubúanum, við förum í monitor á morgun, fáum þá að slaka á í lazy-boy í einhvern tíma :) Vorum í skoðun í dag og allt í gúddí fíling.

Hanna má alveg fara að senda hríðarstrauma ef hún vill fá krílið á afmælisdaginn sinn, eru þeir ekki smá tíma að þvælast yfir hafið?

Darri er ótrúlega duglegur í sambandi við þetta allt, vorum búin að segja honum að krílið kæmi í kringum afmælið hennar Elínar systir, sem átti afmæli 18. mars. Þá á föstudeginum (16.) tilkynnti hann ömmu sinni hátíðlega að barnið kæmi á sunnudaginn! Síðan hafa liðið maaaaaargir dagar (sérstaklega þegar maður er ekki nema 4 ára) og honum finnst ráðlagt að gera ráð fyrir skekkjumörkum þegar hann er spurður hvenær krílið kemur "kannski eftir svona (setur 4 fingur á loft) marga daga". Svo vill svo vel til að okkur mæðginunum finnst afskaplega gott að skreppa í sund þessa daganna. Honum til mikillar gleði og mér til slökunar. Hrikalega þægilegt að láta líða úr sér í volgum potti, ekki verra ef hann er með smá nuddi. Mæli með árbæjarlauginni og nuddpottinum þar.

Svo væri ég alveg til í að þær ykkar sem hafið samband við æðri máttarvöld, mynduð segja veðurguðunum að fara að ákveða sig. Það fer hrikalega í vöðvabólguna mína að hafa svona hita/kulda rokkandi veðurfar. Vaknaði í ískulda í morgun og stíf frá mitti og uppí hársvörð. Ekki spurning um að við Darri ætlum í sund eftir leikskóla!

bið að heilsa í bili!

Harpa, með vöðvabólgu og feitabolla!

P.s. svo má þess geta að ég mun reyna að setja nýjustu upplýsingar hingað inn eftir fæðingu. Þ.e. myndir og nánari útlistingar á fæðingunni :)

0 comments:

Skrifa ummæli

<< Heim