Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

þriðjudagur

35 vikur!

Rosalega líður tíminn hratt!!!! Meðgangan að vera búin og varla byrjuð. Krílið hefur það svakalega gott, létum pota í okkur í gær og allt til fyrirmyndar. Meir að segja blóðið, sem ég þarf annars að berjast við án þess að vera með kríli innanborðs! Þakka það reyndar brenninetluteinu sem ég er búin að vera að drekka. Finn alveg mun við það, verst að það er ekkert sérstaklega bragðgott, en maður reddar sér með því að blanda það með öðru, eins og t.d. Piparmyntu, Camillu eða Fennel.

Þarf að taka nýjar bumbumyndir. Ég er í hálfgerðri einangrun... Móna (hor-móna) vinkona mín hefur nefnilega þannig áhrif á mig að ég get varla horft á fréttir öðruvísi en skælandi svo ég ákvað að sleppa því bara :þ Fínt að vera svona self centered og standa utan við heimsmálin að hluta til.

kveð að sinni, lofa meira bloggi næst.

2 comments:

At sun. mar. 04, 11:39:00 f.h. GMT+0, Anonymous Nafnlaus tjáði sig...

Þú ert svo dugleg skvísa :)

Ert þú hætt að vinna?

Kveðja Hafrún

 
At sun. mar. 11, 06:33:00 e.h. GMT+0, Anonymous Nafnlaus tjáði sig...

Hæ mig langar svo að sjá þig áttu ekki nýjar myndir. Tíminn er svo fljótur að líða þú verður búin að eiga áður en maður hefur séð þig næst. kv Berglind

 

Skrifa ummæli

<< Heim