34 vikur búnar!
Og bara 6 eftir. Dundað mér við að lakka gömlu rúmfatalagerskommóðuna mína um helgina og sú er flott, alveg eins og ný og lítur út fyrir að vera mun massívari. Miðað við hvað það tók á að ná, lakkinu af höndunum á mér, þá dettur kommóðutetrið aldrei í sundur.
Nú get ég farið að dúlla mér við að brjóta saman og setja í skúffurnar :)
Darrinn hressist með hverjum deginum og Biggi í 2 daga fríi úr skólanum. Alveg æðislegt hann var orðinn pínu þreyttur að standa vaktina svona, leikskólakeyrsla, skóli, leikskóli, heim í 2-3 tíma, vinna eða sjá um barn og heimili. Ekkert breik hjá greyinu :)
Varð bara aðeins að láta vita af mér.
kveðja Harpa

0 comments:
Skrifa ummæli
<< Heim