Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

fimmtudagur

*skammast mín*

Fyrir að eiga sveitalúða systkini sem eru bæði mun duglegri bloggarar en ég! OMG! Hvernig gat ég látið þetta gerast?

Annars þá er ég ofboðslega tjáningarlöt eitthvað núna, bara ólétt og fer ört stækkandi. Furðulegt að:
-þetta barn skyldi geta falið sig svona lengi
-ég skyldi síðan hafa getað falið þetta svona lengi
-ég skuli um það bil verða að bumbulínu jósefínu um leið og ég spreyjaði orðunum ;)


Er hress og kát, finnst yfir meðallagi gaman í vinnunni og allt í sóma. Darra finnst æði að það skuli vera barn í maganum mínum, hann vill helst hafa þau mörg! Hann vill gera þetta almennilega ;)

Hingað til hefur hann stolið systkinum af víðavangi. Elín Inga, eða Inga systir hans eins og hann kalalr hana núna, er það nýjasta. Hann hefur líka stolið Einari bróður mínum og systkinum Bigga. Það er töff að eiga systkini sjáiði til ;) Sérstaklega þegar maður er 4 ára.

kveðja Harpa

4 comments:

At lau. nóv. 25, 08:26:00 f.h. GMT+0, Blogger Brynja tjáði sig...

Frábært að KD skuli vera svona ánægður :) hlakka til að sjá Hörpu Bumbulínu Jósefínu aftur ;)

 
At lau. nóv. 25, 11:32:00 f.h. GMT+0, Anonymous Nafnlaus tjáði sig...

Frábært að heyra af bumbukrúttinu :) Æðislega til hamingju ! :)

Síðan verðum við stelpurnar að fara að gera eitthvað í þessu og fara að hittast allar :)

 
At lau. nóv. 25, 10:08:00 e.h. GMT+0, Blogger Harpa tjáði sig...

Ójá! Það eru ÁR OG ALDIR síðan við hittumst síðast :)

 
At þri. nóv. 28, 11:25:00 f.h. GMT+0, Blogger LindaKrissó tjáði sig...

Til hamingju med bumbubuann, Harpa! Thetta er rosalega spennandi fyrir ykkur oll. Sindri dagur vildi a timabili eignast lika brodur en hann er alveg haettur vid. Nog ad thurfa ad semja vid Ellu sys um dotid sitt!

Vid verdum a landinu 23. des-7. jan. thad vaeri gaman ad hittast:)
kv
Linda

 

Skrifa ummæli

<< Heim