stuð, stuð, stuð
Er að fara í brúðkaup um helgina og hlakka ekki lítið til. Það er búið að lofa ekta amerískri rjómatertu híhí Verst að það lítur út fyrir að karlinn minn komist ekki með mér, þar sem það er vitlaust að gera í vinnunni hjá honum. Vildi að það væri þannig í minni vinnu líka....
Síðasta helgi var yndisleg. Leikurinn var geggjaður, algjör snillllllld. Svo fékk ég Fúsa-knús um kvöldið og það er eitthvað sem er eins og jólin. Yndislegt og einu sinni á ári, ja eða svona ca. Huge afmæli á Sunnudeginum og ógurlegt fjör.
Það er einhver tilhlökkun í mér. Allt í gangi og þá er svo gaman. Núna erum við að fara að ráðast í sameignina hérna og kallinn uppi er byrjaður að mála stigaganginn. Lööööngu tímabært. Það er samt ansi mikið sem þarf að gera, en þau eru dugnaðarforkar og við líka og því ætlum við að reyna að gera eins mikið sjálf og við getum. Við þurfum að háþrýstiþvo húsið að utan, sem við getum gert sjálf, og svo þurfum við að láta sprungu viðgera það. Það er eitthvað sem við þurfum að kaupa. Svo getum við málað sjálf. Ég veit ekki alveg hvort okkur tekst að saga sjálfum af svölunum, en það þarf sem sé að saga handriðið af og setja nýtt. Tengdapabbi á steinsög sko!
Ég bíð spennt eftir þar næstu viku. Þá byrjar vinnutörninn og ég verð rík múhahaha.
Og ég er uppfull af útlanda greddu. Möguleiki 1 er að fara í 2 vikur til spánar, leigja helst bíl og flakka á milli borga (fljúga til Alicante og keyra svo til Madrid, Barcelona, taka dag í Port Adventura, keyra upp í fjallahéruðinn og liggja líka eitthvað á ströndinni). Taka ormagrísinn með og gista hér og þar, m.a. hjá vinafólki. Möguleiki 2 er að fara í viku borgarferð 2. Skoða söfn, fara á tónleika, leikhús, út að borða osfrv. Vera á hóteli með góðu rúmi...
Svo er bara að skoða þetta vel. Ég þygg með þökkum álit eina lesandans.
Svo vona ég bara að Þjóðverjarnir taki HM! Ekkert blogg fyrr en eftir helgi, að öllum líkindum.
Plan næstu viku er svo: Vinna mánudag og þriðjudag. Miðv og Fim verðum við Darri heima að þrífa... Vinna fös og lau og ætla helst að vera búin að þrífa, þannig að sunnudagurinn verði bara fjölskyldudagur. Langar í pikk nikk útí garð eða eitthvað ;) Ég þarf nefnilega að þrífa fyrir allan júlí mánuð... Því ég verð nánast bara í vinnunum! Og svo verð ég að klára að bónleysa holið. Stofan er geggjuð svona :þ
of mikið af búlshitti. Later.

2 comments:
Hey velkomin aftur í bloggheima ljúfan! :D Elska nýja lúkkið á síðunni.
Takk svo mikið! Ég er sjálf massa ánægð með það ;)
Skrifa ummæli
<< Heim