Líf á öðrum hnöttum og jú ég er líka á lífi!!!
Alveg alveg alveg satt! Og meira að segja hress og spræk og með fullt fullt af afsökunum. M.a. að ég á að vera að skrifa ritgerð..... En þar sem ég ákvað að gefa mér frí í kvöld og vera bara duglgri á morgun ;) þá var alveg komin tími á blogg! Ég er sem sé byrjuð á fullu í skólanum og fæ nýja og nýja hugljómun á hverjum degi, mér finnst allt svo frábært og yndislegt og umræðuhæft á fyrirlestrunum að ég kem bara full andargiftar út! Sit svo allar pásur og frímúntur og rökræði eða spjalla um heima og geima við bekkjarsysturnar. Já systurnar því það er aðeins einn strákur með okkur í bekk, Og hann mætir ekkert voða vel!
Annars er bara allt að gerast hérna heima við, veggurinn er kominn upp í öllu sínu veldi! Nú þarf að búa til tíma til að mála og snurfusast í herberginu. Sé ekki fram á að Kristófer fari þangað inn fyrr en um jól... Það verður þá bara að vera svoleiðis! Ég lifi það alveg af á stofuborðinu þangað til...
Við erum öll hress og spræk, ennþá gift og hamingjusöm, ormurinn okkar verður jákvæari með hverjum deginum (NEI- aldurinn þið skiljið) og í kvöld fékk ég t.d. bæði að tannbursta hann og klippa neglurnar án slagsmála... ótrúlegt alveg! Svo er þessi elska mjög eftirtektarsamur og uppátækin... Fyrr í kvöld koma hann til mín með 2 spýtur. Rétti mér aðra með orðinu "heddna" og hóf svo að lemja í hana... ég bara "what" en hreyfði svo spýtuna eitthvað til og þá þóttist minn detta á rassinn... óó og stóð svo upp og kom tvíefldur til leiks... jújú sonur minn kann að skylmast! Tristan og Isold eru að öllum líkindum aðalorsökin fyrir því ;) Svo sniðugur þessi elska!
Er að spáí að uppdate-a síðuna hans líka ;) endilega kíkiði!
Adios

0 comments:
Skrifa ummæli
<< Heim