Hún mamma mín er alveg met!!
Já takk fyrir takk henni tókst að fótbrjóta sig AFTUR!! Í ósköp einföldum göngutúr... en það gerði hún líka fyrir 2 árum síðan... Núna verður hún frá í 6-8 vikur og þá á hún eftir slatta af sumarfríinu sínu þar sem hún á alveg 5 vikur eftir.. Hún er reyndar í göngugifsi núna ekki brjáluðu gifsi uppá mitt læri eins og seinast!
Annars er bara geggjað veður! Við erfinginn skruppum í sund áðan, voða er Laugardalslauginn eitthvað sjabbí :S held reyndar að þetta sé bara sandur og sement úr laugum en samt jakk :(
Skemmtum okkur samt konunglega fórum í stóru rennibrautina og minn gólaði VÁVÁ alla leiðinna!! Hnéð er ennþá að bögga mig urrrrr
nenni ekki að blogga í svona góðu veðri
adios

0 comments:
Skrifa ummæli
<< Heim