jeminn eini komin tími á blogg!!!!
Ójá... vá hvað ég er búin að vera þögul... það kemur nú ekki oft fyrir svo munið eftir þessu!!!!
Annars er bara lítið að frétta ;) lífið gengur sinn vanagang. EN með breytingum!! Jújú Biggi minn er kominn á samning og núna vinnur hann eins og bilaður og gerir það næsta mánuðinn. Næstum tvöfalt!!! jæks... Svo breytti ég orlofinu mínu þannig að ég er bara í hálfu orlofi og svo part time vinnu á móti. Sem er mér vinnu alkanum nauðsynlegt! Fínt líka því að ormastrákurinn minn er kannski ekkert að komst inná leikskóla... búhú fyrir því.
Annars var styktarfundur í síðustu viku. Kona sem er félagsráðgjafi og hefur átt andvana fætt barn kom og ræddi við okkur. Hún hefur fengið að heyra það vegna þess að hún er með mynd af syni sínum uppá vegg... jemin eini hvað fólk getur verið tillits laust!!! Hún talaði meðal annars um síðuna hennar Perlu Dísar okkar!!
Svo var annar styrktarfundur í kvöld. Í þetta skiptið var kvensjúkdómafræðingur. Mjög gaman að því. Næst verður svo svona lokastund og báðir hóparnir saman. Já Báðir því að það eru 2 hópar og eru foreldrar 4 barna í hvorum hóp fyrir sig!
Svo er ég búin að vera vinna slatta, kemur svona í rispum. Var að vinna alla daganna í síðustu viku hjá HB 5 tíma á dag og svo 2 tíma á föstudaginn. Var svo á gh á fimmtudags og föstudagskvöld og svo hjá HB aftur á laugardagnóttina. Voða fínt að vinna á kvöldin. þá hef ég daginn með KD :) Síðan er ég bara lítið sem ekkert að vinna fyrr en um miðjan maí :) Ætla að skreppa í sveitina til pabba um helgina og vera eitthvað. aðstoða hann í sauðburðinum :)
Annars er bara svaka róleg heit hérna... Ef einhvern langar að gefa mér síðbúna afmælisgjöf þá langar mig í eldhúsinnréttingu... Finnst ykkur ég kröfuhörð? :P
Bið að heilsa í bili

0 comments:
Skrifa ummæli
<< Heim