Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

fimmtudagur

Stend ekki við neitt þessa daganna híhí

jamm og jæja.. var ég ekki eitthvað að bulla um að vera duglegri við að blogga? *hóst**hóst*

Reyndar er mikið búið að vera að gera mikil vinna bæði hjá mér og Birgi mínum :) Svo allskonar snatt útum allt!

En þetta var það sem mig langaði að segja um það sem ég skrifaði í denn sem mest um, þ.e. lokunina á síðu Perlu Dísar:

Stundum óska ég þess samt að þetta hefði ekki gerst á þessum tíma, aðeins rúmum 2 vikum eftir að Perla Dís fæddist. Ég var náttúrulega langt frá því að vera búin að jafna mig, hvorki andlega né líkamlega og við þetta auka áreiti varð ég bara úrvinda! Eins kraftmikil og ég er vanalega. Ég hefði gjarnan viljað gera meira úr þessu ég hafði bara hvorki orku né þrek til þess á þessum tíma. Ég hefði t.d. ef þetta hefði gerst í dag, farið í t.d. Ísland í dag, Fólk með Sirry og Kastljós þess vegna því að feimnin er ótrúleg og þó að þetta hafi gert gott og opnað umræðuna er stórt verk óunnið. Ég veit reyndar ekki hvort ég væri til í að koma sjálf fram en sögunu mína fengju þau hiklaust.

Í dag tel ég mig komna í ágætis ástand, það þakka ég reyndar líka því að ég fór í orkupunktanudd sem gerði ekkert smá gott ég gjörsamlega sveif út, og mæli eindregið með ef þú hefur tök á að komast í svoleiðis að skella þér, kostar reyndar 4000 kr EN vá hvað það var þess virði!

Þegar ég er komin í svona gott ástand andlega hef ég mikið spáð, ætli ég hefði gert annað, svarað þeim öðruvísi, gert eins og þau báðu osfrv en svarið er alltaf það sama. Ég hefði aldrei sagt já og amen ég hefði jafnvel orðið verri viðureignar ef eitthvað er. Mér finnst stjórnendur barnalands.is ekki hafa brugðist rétt við í þessu máli LANGT Í FRÁ!

hehe ég verð bara reið við að tala um þau... :)En allaveganna smá update af því hvað mér finnst í dag um þessar "aðgerðir" þeirra! Ég hefði ekki farið útí þetta til að fá athygli eins og ég veit að einhverjir hugsa, nei ég hefði farið útí þetta til að gera fólki grein fyrir því að þetta gerist, börn deyja líka í móðurkviði og vitið hvað það MÁ tala um það og það ÞARF að leyfa foreldrunum og öðrum fjölskyldumeðlimum að tjá sig um það!! Fólk þarf ekki að hlaupa í felur það þarf ekki að fara hjá sér, hvað geriru ef einhver segir þér að mamma/pabbi/systkini hafi dáið? Flestir votta samúð og spyrja svo hvað hafi komið fyrir. Þegar fólk spyr mig hvernig gangi með börnin mín 2 (jamm er ennþá að fá þannig spurningar) og ég segi að stelpan mín hafi því miður fæðst andvana frýs fólk í 99,9% tilvika, það gerir það ennþá erfiðara fyrir mig að segja frá þessu og sumum hef ég hreinlega sleppt við að segja það, þ.e. ef fólk spyr hvað fékkstu t.d. þá hef ég 1-2 sagt bara stelpu stutt og laggott og svo jafnvel rokið í burtu... Ég veit að það finnst fleirrum en mér erfitt að segja þetta og fleirri hafa logið en ég. Held að flestum sem missa ung börn finnist erfitt að segja frá því einmitt útaf viðbrögðunum, manni líður eins og maður slái fólk með blautri tusku í andlitið!

Annars er bara fínt að frétta.. síminn má ekki hringja þá eru ormastrumpur búinn að gera eitthvað af sér.. Hann getur verið hræðilegur þessi elska :) Eins og hann er nú yndislegur samt :)

Kannski (lofa samt engu) það fari að vera styttra á milli blogga :) Nú fer að róast í vinnunni og meira skipulag að komast á heimilishaldið :)

p.s. varð brjáluð áðan og sendi póst til félagmálaráðuneytisins... hehehe ein í ham, segi kannski frá því á morgun :)

Góðar stundir

0 comments:

Skrifa ummæli

<< Heim