Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

miðvikudagur

Það er naumast ...

... að mannfólkið fjölgar sér hratt, vorum að skoða eina viku gamla í dag, það klingdi nú all hressilega sko... svo var ég að skoða myndir af öðru angaskinni jemin held að maður bjóði manninum bara upp í "dans" *flisss*

Það er ekkert smá gaman að þessum litlu skinnum, man ekki eftir því lengur hvernig minn var þegar hann var svona lítill það er svo rosalega langt síðan alveg að verða 2 ár! Skil engan vegin hvernig mamma man eftir hegðun okkar sem ungabarna *hristi haus* meir að segja fyrir tíma "vefdagbókarinnar"!!!

Ætli tæknin verði þess valdandi að maður verði gleymin? Mamma er nefnilega hrikalega anti-tæknisinnuð og mun minnugri en ég :) Blessað barnið sem er svo tæknivædd :P Annars er ég að fara að ljúka við uppsetninguna á þráðlausanetinu hennar móður minnar og er mikið að spáí hvort ég eigi að kenna henni á umræðuna á barnalandi.. Kannski ég geri bara könnun að því tilefni! :P

well besta að henda inn 1 stk könnun og svo lít ég kannski við bráðum til að sjá niðurstöðurnar.... og jafnvel skrifa meira svona ef einhver hefur áhuga á að lesa?

Svo annað (svona í lokin) ég er svo svakalega ofboðslega forvitin að ég held stundum ekki vatni! Í alvörunni þá er þetta hræðilegt! Næ reyndar í flestum tilvikum að hemja mig en stundum (eins og í kvöld) þá lendi ég á "bloggrölti" og uppgötva þá stundum nokkrar nýjar síður.. oftast sem tengla hjá nafnlausum eða nafnbirtum bloggurum sem ég kannast við, eða í commentum! Allaveganna þá finnst mér svo oft eins og ég eigi að þekkja viðkomandi :S á skrifunum var alveg búin að fatta einn nafnlausan bloggara áður en ég hitti hann um daginn og gat spurt og það reyndist rétt hjá mér ;) klár stelpan sko! En suma er ég ekki að fatta og það böggar mig :(

En ég sætti mig við það og þar til næst, góðar stundir (hljóma ég nokkuð eins og rás 1?)

0 comments:

Skrifa ummæli

<< Heim