Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

þriðjudagur

Brúðkaupið

Smelltu hér til að sjá myndirnar :) SMELLA Og njóttu vel :)

Af ýmsum ástæðum hef ég lítið bloggað, það er sumar maður er úti í sólinni, svo vorum við að skipta um eldhúsinnréttingu, svo kom brjáluð vinnutörn, svo gæsun sem tók nokkra daga að jafna sig á og svo brúðkaupsundirbúningur á met hraða... Hvað annað ;)

En allaveganna þá áttum við Birgir Freyr minn fullkomin brúðkaupsdag, fengum yndislegt veður og allt gekk upp... Reyndar gleymdust blómin í hnappagötin ;) og amma átti ekki merkt sæti en það reddaðist... Hvernig gat ég gleymt ÖMMU af öllum.... :S Jemin ég hélt að það væri ekki hægt!!

En nú er maður bara orðinn frú ;) og ósköp lítið annað sem hefur breyst. Ég verð alltaf sama Harpa fyrir því :)

Annars erum við Kristófer eitthvað slöpp og sljó, erum hás og hóstandi, og með einhvern hitavelling :( Ekkert gaman hjá okkur í góða veðrinu. Og svo í ofaná lagt þá er Barnaland niðri vegna "truflana" my ass... Þegar maður dettur út mörgum sinnum á dag, án þess að vera þar 24/7 þá er þetta ekki í lagi... Núna á klst hef ég t.d. komist einu sinni inn og datt jafn óðum út... Ég þori ekki fyrir mitt litla líf að loada inn myndum né uppfæra vefdagbókina, það fer nú örugglega allt fjandans til... reyndi um daginn og hann vildi engar myndir sjá, kom alltaf einhver error melding.. Þetta er nú frekar glötuð þjónusta sem maður í þokkabót er að greiða fyrir...

En jæja nóg af pirring í bili. Kannski ég reyni að þrífa í staðinn :(

Góðar stundir :)




0 comments:

Skrifa ummæli

<< Heim