Get ekki annað en skánað úr þessu...
Sit hérna andvaka. Á 3 lítra af rauðvíni og ákvað að fá mér bara svoleiðis :þ
Annars er ég voðalega mikið að spá og spekúlera. Í allt og öllu. Eins og heimilinu, stjórnmálum, samfélaginu og fleiru. Ég þarf eiginlega að spá betur í því áður en ég blogga um það. Þarf að njörfa það niður í skotheldari pælingar. Það er margt sem brennur á huga mínum þessa daganna. Ég ætti í raun að bjóða einhverjum í rauðvín og gott tjatt. Auðbjörg væri tilvalin kantídat. Læt kannski verða af því að á morgun.
Ástæða andvökunar er einföld. Ég sofnaði með orminum um 10 leytið (ekkert uppeldi á þessu...) og vaknaði svo rétt fyrir miðnætti við að þvottavélin tók sólódans. Stökk framúr, fékk hjartaáfall því þurrkarinn hafði stoppaði í miðju prógrammi.. Bjóst við annari slitinni reim. En hann hélt áfram. Og vélin róaði sig í dansinum. Lagðist uppí aftur og heyrði svona í gegnum svefninn að maðurinn kom heim. Korteri seinna hringdi dyrabjallan! Klukkan ekki orðin 1 og ég vöknuð. Er búin að liggja og velta mér um í rúminu síðan nánast.
Er að spáí hvort ég eigi að hella upp á kaffið eða fara og leggja mig... Stór spurning. Ég á nýtt brauð og egg. Get líka soðið þau. Annars er ísskápurinn minn fullur af bjór og jellyskotum síðan í gæsununni um helgina. Get alveg legið í mareneringu fram að helgi. En á föstudag byrjar bilun.is HM í fótbolta. vúhú.
Læt þetta nægja að sinni. Blogga kannski aftur á næsta rauðvínsglasi.
Lö Harpólfur

0 comments:
Skrifa ummæli
<< Heim