Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

miðvikudagur

*grát*

Þjóðverjarnir mínir töpuðu :( Ítalirnir eru samt vel að sigrinum komnir! Frábær leikur í alla staði.

Sé fram á vinnutörn dauðans og hroðbjóðsins og alles. Einu frídagarnir mínir eru sofi dagar eftir næturvaktir. Skemmtilegt það... vonast til þess að útborgunarumslag 1. september verði skemmtilegra en törnin sjálf. Vinn helling um helgar, nánast bara 9 og 10 tíma vaktir og oftast á til 23 vakt, eða næturvakt. Sem þýðir bara meir álag og meira álag, peningalega séð!

Hlakka til að sjá Frakkland - Portúgal á morgun. Kannski Þ+F lendi bara í 3. sætis leiknum og það verði eitthvað að gera þá líka? Það má vona það. Sá leikur hefði verið dauðadæmdur ef Í+P hefðu lent þar.

Mér finnst mín stærðfræði einfaldari og skemmtilegri en Maríu. *flissss*

Næturvakt annað kvöld, kem með miklar pælingar þá :) *knús og kram*

Harpa sæta eðalblanda.

2 comments:

At mán. júl. 10, 10:28:00 f.h. GMT+0, Blogger Brynja tjáði sig...

gaman að sjá þú ert farin að blogga aftur... datt í hug að taka rúnt á síðunum sem maður kíkti alltaf á einu sinni ;)
Þú hefur væntanlega verið ánægð með úrslitin í gær?

 
At fös. júl. 14, 02:09:00 f.h. GMT+0, Blogger Harpa tjáði sig...

óseisei nei. Og alls ekki með Zidan minn. uss og svei.

Gaman að sjá þig í heimsókn kíktu endilega aftur :) Það kemur meira ;)

 

Skrifa ummæli

<< Heim