Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

sunnudagur

38 vikur!

Hér kemur fyrst mynd sem er tekin þegar við hjónakornin vorum á leiðinni á árshátíð Hornsins, þarna er ég komin rúmar 33 vikur


Hér koma svo myndir "glóðvolgar" 38 vikna bumbumyndir bæði af klæddri og allsberri bumbu, sem í þokkabót er uppfull af tapas! Lof it!



Er uppbókuð þessa daganna, þ.e. mamma vildi fá krílið á föstudag, Elín systir vill fá það í dag, sunnudag, eins er búið að panta 19 og 20, 27 og 5 apríl. Ég hef ekki hugmynd um hvenær krílinu hentar að mæta... En ég hlakka hellings til að hitta það in person, svo ekki sé minnst á hvað ég hlakka til að geta setið almennilega og borðað heila máltíð á innan við klst... Auk þess eru rifbeinin mín orðin virkilega aum og sár... þau skilja ekkert hvað þau hafa unnið til að fá öll þessi spörk...

Annars er ég að fara að vinna núna mánudags og þriðjudagshádegin. Hlakka ekkert lítið til að afgreiða stóra hópinn "minn" á þriðjudag. Svo má krílið bara fara að mæta :)

Fór áðan að borða með skvísunum mínum á tapas og það var æðislegt, þ.e. að hitta þær og mjög gott að borða. Þjónustan var nú ekkert til að hrópa húrra yfir, en alveg án þess að vera léleg samt. High five þjónninn verður líklegast í minnum hafður... Hann var líka sætur Hrefna!

adios í bili, næstum sprúnkt mamman!

6 comments:

At sun. mar. 18, 02:31:00 f.h. GMT+0, Blogger Harpa tjáði sig...

p.s. það eru meiri myndir á myndasíðunni, sjá efsta tengzlið :)

 
At sun. mar. 18, 09:50:00 f.h. GMT+0, Blogger Brynja tjáði sig...

æðislegar myndir - en þú gleymir því að ég fer fram á að krílið verði stundvíst og láti sjá sig á settum degi, 1.apríl!

 
At sun. mar. 18, 12:44:00 e.h. GMT+0, Blogger Harpa tjáði sig...

Hey, já alveg rétt! Og það er í raun alveg líkur á því sko... Fullt tungl þann 2, fyllist ekki fæðingardeildinni rétt fyrir fullt tungl? ;)

 
At sun. mar. 18, 06:57:00 e.h. GMT+0, Blogger Hannarut tjáði sig...

Æðislega myndir. Þú ert með rosa flotta bumbu :) Um, það verður spennadi hvaða dag krílíð lætur sjá sig en ég er samt alveg viss um að ég fái lítið kríli í afmælisgjöf :)

 
At sun. mar. 18, 07:37:00 e.h. GMT+0, Blogger LindaKrissó tjáði sig...

Rosa flott bumbulína:-)

 
At mán. mar. 19, 12:01:00 f.h. GMT+0, Anonymous Nafnlaus tjáði sig...

Ástarþakkir allar þessu fallegu myndir af þér.
Gangi þér allt í haginn mín kæra vinkona.

 

Skrifa ummæli

<< Heim