37 og niðurtalning hafin!
Er ennþá að vinna Hafrún mín :) Mér finnst bara svo gaman í vinnunni minni ;) En ég vinn núna bara 11-18 á mínum vöktum, kvöldin eru orðin of erfið. Vinn núna, miðvikudag og fimmtudag og sennilegast mánudag og þriðjudag í næstu viku, eða bara á meðan heilsan leyfir og krílið tollir innan bumbu!
Á von á gesti (systu) á eftir og læt hana kannski bara taka myndir af mér :) skelli þeim síðan hingað inn. Annars er allt nánast tilbúið fyrir krílið, öll föt hrein og allt í orden. Er að vinna í því að kaupa mér kerruvagn svo ég geti síðan farið að spóka mig down town reykjavík.
Lét pota í mig í dag (mæðraskoðun) og það er allt eins og það á að vera :þ
Meira seinna.

2 comments:
já þú verður endilega að skella inn einni bumbumynd, aldrei að vita hversu langt er eftir. Sjáumst á laugardaginn skvís :)
Kveðja Vala
þú manst að halda í þér til 1.apríl ;)
Skrifa ummæli
<< Heim