Haha!
Mér líður eins og ég sé dreginn mikið í efa... En ég er komin með verki og óska eftir öflugum hríðarstraumum. Týpískt að krakkinn ætli að mæta á þessum degi.., allir draga mig í efa :þ hahaha!
Þið heyrið sennilega í mér reglulega í dag. Núna er þetta voða afslappað, Biggi er ennþá í vinnunni, er að redda sér afleysingu (ég held hann sé pínu stressaður um að ég sé bara að plata), og við Darri sitjum hérna og horfum á Klaufabárðana ;) Ca 10 mínútur á milli og voða huggulegt bara. Eins og það á að vera.
knús Harpa og bráðum ekki bumbubarn, nema ÞAÐ sé bara að plata!

7 comments:
Ómægad!!!
Ég rassskelli þig ef þú ert að plata.
Ég ætla að poppa.
Ég ætla líka að poppa!!!
Bíð spennt eftir fréttum :D
ÍÍÍhaaa gaman gaman. Sendi þér svaka strauma og vonum að krílið sé ekki að plata ;)
Baráttukveðjur frá Lúxembourg
gangi ykkur ofsalega vel :) :)
það er bara gaman að eiga afmæli í dag :)
spennandi......það er alveg bannað að vera að plata mann!!! En ef þetta er allt að gerast þá gangi rosa vel ;)
Ég fékk sms og hélt að það væri plat!
Já sama hér .... skemmtilegasta sms sem ég hef fengið 1.apríl...Litla apríl gabbið var þá satt hehe
Skrifa ummæli
<< Heim