ohhhh svo sybbin :þ
Já, það tekur á að gefa brjóst á nóttunni, sérstaklega þegar það er einn að verða 5 ára líka uppí rúmi ;)
Ætlaði bara að láta að vita að allt gengur súper vel, litli maðurinn dafnar eins og blóm í engi, búinn að ná fæðingarþyngdinni og er bara algjört ljós. Sefur og drekkur og kíkir einstaka sinnum í kringum sig. Hann er samt mjög ákveðinn og vill brjóstið sitt (algjörlega hans, hann heldur utan um það með báðum höndum á meðan hann drekkur) NÚNA og alls ekki seinna þegar hann er svangur, er mjög aðgangsharður við pabba sinn ef hann er með hann og reynir hiklaust að sjúga upphandleggi eða treyjuhálsmál :þ
Stóri bróðir heldur áfram að vera montnastur af honum, finnst hann sko sætastur og vill endalaust knúsa litla stýrið. Hann er voða lítið afbrýðisamur, er svona aðeins að sjá hvar mörkin liggja eftir stækkunina, hvort að mamma hafi tíma til að hjálpa honum að klæða sig osfrv. Bara sætastur ;) Hann vill reyndar að litli bróðir sinn fái að heita Óli Lokbrá... Foreldrunum líst ekkert á þá hugmynd :)
Við erum u.þ.b. að verða ásátt um nafn sem sé og það kemur væntanlega í ljós fljótlega, ekki viljum við að Óla Lokbráar nafnið festist við hann!!!
kveð að sinni, set fljótlega inn fleiri myndir.
Harpa

1 comments:
Ég kannast við þetta. Þetta með næturnar verður auðveldara. Svona upp úr hálfsárs verðuru farin að sofa aðeins betur og þegar Anni Jón verður farinn að nálgast eins árs getur hann bara barið frá sér ;)
Högni klappar bara systur sinni og hún lætur alveg í sér heyra ef stóri bró fer eitthvað of nálægt henni...
Drífðu þig nú að setja inn nýjar myndir!!! Ég athuga alveg á hverjum degi og aldrei gerist neitt.
Skrifa ummæli
<< Heim