Prjónamont!!
Fyrst gefur að líta hérna þessar stórkostlegu ullarprjónabuxur, síðar gerðar eftir bleiubuxna uppskrift, bætti bara við skálmum. Virka ótrúlega vel, sérstaklega með slingnum! Við buxurnar er gríslingurinn í janus samfellu og ullarsokkum sem ég prjónaði.

Nærmynd af fínu fínu sokkunum (gleymdi að mynda vettlingana, en þeir eru úr sama garni, sama lit, ekki auðtýnanlegir)

Hér er svo mynd af peysunni, hún er alls ekki gallalaus, en hugarfóstur mömmunnar og uppskálduð frá a-ö! Er mega stolt af henni. Hún er rosalega teygjanleg og úr ull off course! Við peysuna er hann í Joli bleiu, hér sést ágætlega hvað hún passar vel, hún er medium en guttinn er ca 5.5 kg og ekki nema tæplega 6 vikna. Svo eru fínu sokkarnir þarna líka :)

Vettlingar á stóra strákinn, á bara eftir að ganga frá endunum.

Og svo ein hrikalega sæt af okkur mæðginunum í sturtu :)

Fleiri myndir á myndasíðunni :)
kveðja Harpa prjónakona

1 comments:
það er nú meiri dugnaðurinn, mætti halda að þú hefðir bara ekki sofið fyrir prjónaskap. Drengurinn er þessi líka fína fyrirsæta ;)
Skrifa ummæli
<< Heim