Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

laugardagur

Leti blogg

Ligg hérna í hrikalegri leti og nenni ekki að gera neitt. Darrinn fór í roadtrip norður í land með pabba sínum, Biggi er að vinna og Alexander hefur sjaldan sofið eins vel og í dag! Búin að þvo smá þvott reyndar og stefni á að brjóta hann saman og ganga frá í kvöld.

Langt síðan letin hefur heltekið mig svona. Nenni sko ekki einu sinni að prjóna!

Nennti að reyna að lesa mér til um fíflaættir á netinu... mjög merkilegt, en ég hef samt ekki hugmynd ennþá um hvað fífla plantan mín heitir. Einhverjar hugmyndir, hún er eins og stór túnfífill með sólblómsblóm sem er alveg gult í miðjunni. Blómið vex á blaðalausum stöngli og blöðin eru svona tennt eins og túnfífilsblöðin, bara svona 5x stærri!

Plantaði melónunni, tómötunum og kryddunum í stærri potta, setti niður kál og meiri tómata fræ (það verða bara tómatar í matinn hjá mér næsta vetur...) og keypti síðan lavender, kaktusa og spínat fræ!

Mig vantar stærri stofuglugga fyrir plönturnar...

kv Harpa

0 comments:

Skrifa ummæli

<< Heim