Réttir og snjókoma!
Skruppum í réttir um helgina. Ég og gormarnir, Biggi var að vinna. Darri lék á alls oddi og var ofboðslega hrifin af nýja bílnum hans bróðir míns, en þeir vinirnir rúntuðu um á Land Rover, gömlum, með heybagga á toppgrindinni! Alexander var bara í magapoka (keyptum okkur ergó http://gudrunarna.googlepages.com/bleiubudin) og naut sín vel þar. Puðraði á kindurnar og hló framan í allt þetta skrítna fólk.
Þeim var báðum sama þótt það blési kröftuglega og væri SLYDDA! Við drifum okkur svo heim uppúr hádeginu og fórum í hólana. Gáfum krökkum að borða og lögðum okkur síðan smá, ég og ALexander. Þegar við vöknuðum var hvítt um að litast! 15. september og kindurnar stóðu á hvítu Upptúninu og það hefðu þurft að skafa af bílunum. Darralingurinn fór í útgallan og út að leika í snjónum! Mokaði þessi ósköp.
Planið hafði verið að fara heim á laugardeginum en vegna veðurs ákváðum við að gista, það var verið að skafa í ölfusinu og í kömbunum. Ekki mjög smart veður.
Mér finnst það eigi að banna svona veðurfar!

3 comments:
Veturinn virðist ætla að koma snemma í ár. Það er innan við mánuður, síðan maður gekk um í stuttermabol utandyra.
Darri hefur skemmt sér vel þó :-)
Úff, ég nennti ekki í réttir vegna veðurs. Kk. Hanna.
Blogga svo meira! :)
Skrifa ummæli
<< Heim